26.9.2008 | 11:16
Leiðindi í gifsi
Mikið er leiðinlegt að vera rúmliggjandi heima hjá sér í gifsi! Er búinn að liggja heima með fætur upp í loft í 10 daga og allar bækur og allar dvd myndir skoðaðar!
Sér nú fyrir endan á þessu - losna við þetta gifsi á þriðjudaginn kemur en fæ þá göngugifsi/spelku sem ég má stíga í - mikið hlakka ég til!
Lét laga vinstri ökklann sem hafði verið lúinn sl. þrjú ár eftir slæma tognun á Barónamóti 2005! Kom á daginn að ég hafði brákast á einhverju beinanna í ökklanum og því kannski eðlilegt að hann virkaði ekki sem skildi.
Verð vonandi kominn á beinu brautina í næstu viku!
Athugasemdir
næsta skref er bara að ræna playstation tölvunni hans hjálmars arnar... eða grafa upp gömlu nintendo tölvuna mína... þá er garanterað að þér mun ekki leiðast!!
hallastína (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 23:29
Vona að þú hafir ekki dáið úr leiðindum frændi .... eða orðinn húkkt á tölvuleikjum ....
Herdís Sigurjónsdóttir, 3.10.2008 kl. 09:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.