Leiðindi í gifsi

Mikið er leiðinlegt að vera rúmliggjandi heima hjá sér í gifsi! Er búinn að liggja heima með fætur upp í loft í 10 daga og allar bækur og allar dvd myndir skoðaðar! fótu í gifsi

Sér nú fyrir endan á þessu - losna við þetta gifsi á þriðjudaginn kemur en fæ þá göngugifsi/spelku sem ég má stíga í - mikið hlakka ég til!

Lét laga vinstri ökklann sem hafði verið lúinn sl. þrjú ár eftir slæma tognun á Barónamóti 2005! Kom á daginn að ég hafði brákast á einhverju beinanna í ökklanum og því kannski eðlilegt að hann virkaði ekki sem skildi.

Verð vonandi kominn á beinu brautina í næstu viku!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

næsta skref er bara að ræna playstation tölvunni hans hjálmars arnar... eða grafa upp gömlu nintendo tölvuna mína... þá er garanterað að þér mun ekki leiðast!!

hallastína (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 23:29

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Vona að þú hafir ekki dáið úr leiðindum frændi .... eða orðinn húkkt á tölvuleikjum  ....

Herdís Sigurjónsdóttir, 3.10.2008 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband